RRSKIL

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Member Area
Allan raf- og rafeindatækjaúrgang á að flokka og farga löglega! Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurði Jónssyni, framkvæmdastjóra RR-SKILa í Morgunblaðið.   
Alþingi Íslendinga samþykkti á sl. vori lög nr. 73/2008 um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Þarna er sérstaklega tekið á og innleidd tilskipun ESB , sk. WEEE tilskipun, varðandi flokkun og förgun raf- og rafeindatækjaúrgangs . Lögin leggja þá ábyrgð á herðar þeim sem flytja inn eða framleiða umrædd tæki í atvinnuskyni að fjármagna og framkvæma förgun tækjanna eftir viðurkenndum leiðum, en sveitarfélög og e.t.v. fleiri aðilar taka við þessum úrgangi án kostnaðar fyrir neytendur en geta krafið fyrirtæki um gjald. Nú er það svo að umrædd fyrirtæki eru stofnuð og starfrækt til að flytja inn og/eða framleiða og selja raf- og rafeindatæki.
Starfsfólk þeirra hefur sérþekkingu á þessu sviði og þjónustu við markaðinn varðandi umrædd tæki. Því er það fyrirtækjunum keppikefli að rækja ábyrgð sína varðandi förgun tækja með sem hagkvæmustum og skilvirkustum hætti án þess að láta það trufla meginstarfsemi fyrirtækjanna. Lögin gera líka ráð fyrir því að fyrirtækin geti sameinast um stofnun og rekstur skilakerfa sem yfirtaki þá ábyrgð fyrirtækjanna sem á hinn bóginn fjármagni rekstur skilakerfanna og beri ábyrgð á rekstri þeirra. Fyrirtæki sem flytja inn eða framleiða umræddar vörur áttu að skrá sig í skilakerfi fyrir 1.október 2008 og skilakerfi áttu að vera starfhæf um áramótin á eftir. Hjá fámennri þjóð eins og Íslendingum hlýtur það að vera þýðingarmikið að dreifa ekki kröftunum, heldur sameinast um eitt skilakerfi sem þó á vegna smæðar landsins líklega fullt í fangi með að njóta hagræðis á grundvelli magns þess úrgangs sem ráðstafa þarf. 
Sumarið 2008 gengust hagsmunasamtökin FÍS, SA, SI og SVÞ fyrir kynningar- og stofnfundi sameiginlegs skilakerfis sem hlaut nafnið RR-SKIL og vísar það til raf- og rafeindatækjaúrgangs. Nokkur fyrirtæki gerðust strax stofnaðilar að þessu félagi, sem er óarðberandi félagsskapur aðildarfyrirtækja sem ætlað er að uppfylla skyldur þeirra með sóma en á sem hagkvæmastan hátt. Fyrirtækin munu öll greiða sama stofngjald, en greiða síðan endurvinnslugjöld sem eru mismunandi eftir þeim 10 vöruflokkum sem falla undir skilakerfi og í samræmi við innflutning viðkomandi fyrirtækis. 
Vöruflokkarnir 10 sem um ræðir eru: Stór heimilistæki: Kæliskápar,frystar,þvottavélar,þurrkarar, eldavélar o.fl.Lítil heimilistæki: Ryksugur, saumavélar, straujárn, brauðristar o.fl.Upplýsinga- og fjarskiptabúnaður: Tölvur, prentarar, reiknivélar,faxtæki o.fl.Neytendabúnaður: Útvörp, sjónvörp, myndbandstæki, hljóðfæri, upptökutæki o.fl.Ljósabúnaður: Ljós, lampar, ljósabúnaður o.fl.Raf- og Rafeindatæki: Borar, sagir, rafverkfæri , garðverkfæri, spraututæki.Leikföng,tómstunda-, íþrótta- og útivistarbúnaður: Rafknúin leikföng, tölvuleikir, útivistarbúnaður,spilakassar.Lækningatæki: Geislameðferðar- og hjartalækningatæki, öndunarbúnaður o.fl.Vöktunar- og eftirlitstæki: Reykskynjarar, hitastillar, vogir,vöktunar- og eftirlitstæki.Sjálfsalar: Sjálfsalar fyrir drykki o.fl. Peningasjálfsalar o.fl. 
Það er augljóst að hér er um heilmikið kerfi að ræða og þörf fyrir vandaðan undirbúning auk mikils samstarfs opinberra og einkaaðila til að vel fari. Vonast var til að reglugerð, gjaldskrár, starfsleyfi og samningar við þjónustuaðila yrðu ekki til að tefja það ferli sem lögin fyrirskipa enda leggi aðilar sig fram um að svo verði. Þessi varð því miður ekki raunin.  Innleiðing þessarar tilskipunar átti að vera lokið fyrir nokkru síðan og því var það kappsmál fyrir opinbera aðila sem sæta eftirliti ESA að koma kerfinu sem fyrst til framkvæmda.  RR-SKIL reka skrifstofu að Síðumúla 31 í Reykjavík og þar og á vefsíðu félagsins, www.rrskil.is  má leita upplýsinga um og sækja gögn vegna aðildarumsóknar.