|
Leyfisnúmer nauðsynleg frá áramótum! |
|
|
|
|
Hinn 1.júlí sl. tóku gildi breytingar á lögum nr. 55/2003 sem fela í sér að nauðsynlegt er að innflytjandi raf- og rafeindatækja sé aðili að skilakerfi, sé skráður hjá Umhverfisstofnun og hafi greitt árgjald og fengið leyfisnúmer til þess að hægt sé að tollafgreiða innflutt tæki. Fyrirtæki þurfa þannig að gerast aðilar að skilakerfi eins og RR-SKILUM og það er afar einfalt. Hér á vefsíðunni er hnappur sem á stendur Sækja um aðild. Sé ytt á hann birtist aðildarumsókn sem fylla þarf út, prenta síðan, undirrita og senda í pósti, faxi eða tölvupósti (skannað) á skrifstofu félagsins. Þá annast félagið skráningu hjá Umhverfisstofnun og greiðslu árgjaldsins og sendir fyrirtækinu síðan leyfisnúmer þegar reikningur fyrir skráningargjald, árgjald og umsýslu hefur verið greiddur.
Við innflutning eftir áramótin er leyfisnúmer innflytjanda fært í reit 14 í tollskýrslu.
|
|
RR-SKIL er óarðberandi félag innflytjenda! |
|
|
|
|
Það er mjög auðvelt að gerast félagsmaður í RR-SKILUM.
Þegar löggjafinn ákvað að láta innflytjendur og framleiðendur raf- og rafeindatækja axla sk. framleiðendaábyrgð sem felur í sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun móttöku, flutninga, meðhöndlunar og ráðstöfunar úrgangs samskonar tækja sem berast á söfnunarstöðvar sveitarfélaga um allt landið, þá stofnuðu fyrirtækin RR-SKIL og fólu því þetta verkefni fyrir sína hönd. Félagið er rekið sem óarðberandi eining og markmikið að halda útgjöldum og þar með endurvinnslugjöldum á félagsmenn í algjöru lágmarki, en uppfylla jafnframt allar skyldur skv. gildandi lögum og reglum með sóma fyrir hönd félagsmanna. Félagið var eitt á markaði í tæpt ár og mótaði með stjórnsýslunni þá starfshætti og verkferla sem gilda um þessa starfsemi. Nú eru yfir 350 stór og smá fyrirtæki í félaginu. Það er einfalt að gerast aðili að félaginu því hér á vefsíðunni undir hnappnum Sækja um aðild er aðildarumsókn sem fylla þarf út, prenta síðan, undirrita og senda í pósti eða tölvupósti (skannað) til félagsins. Reikningar á grundvelli innflutnings félagsmanna skv. upplýsingum frá tollstjóra eru síðan sendir mánaðarlega og krafa jafnframt stofnuð í netbanka. |
|