| Framleiðendaábyrgð- hvað er það? 17.11.2008 |
|
|
|
Hér verður einungis fjallað um framleiðendaábyrgð í skilningi laga nr. 73/2008 um raf- og rafeindatækjaúrgang. Þessi lög byggja á tilskipun ESB frá 2002 og síðari breytingum á þeim, en Ísland varð samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið (EES) að leiða þetta í lög hér, sem og var gert sl. vor á Alþingi. Þessi tilskipun hefur verið lögleidd í flestum löndum Evrópu og er því ekki algjör nýmæli. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur rekið á eftir þessari lögleiðingu og stjórnsýsluákæra legið við að svo yrði gert. Með tilvitnuðum lögum er lögð sk. framleiðendaábyrgð á innflytjendur og framleiðendur raf- og rafeindatækja sem felur í sér að umrædd fyrirtæki bera frá 1.janúar 2009 fjárhags- og framkvæmdalega ábyrgð á förgun alls raf- og rafeindatækjaúrgangs sem berst frá heimilum og öðrum inn á sorpsöfnunarstöðvar um allt land, en þau geta skilað þessu sér að kostnaðarlausu. Þess misskilnings hefur nokkuð gætt að fyrirtækin beri einungis ábyrgð á þeim rr-úrgangi sem til fellur hjá þeim sjálfum, en svo er ekki. Ábyrgð fyrirtækjanna er í réttu hlutfalli við það magn tækja sem þau setja á markað hér á landi. Þannig ber fyrirtæki sem flytur inn 10% af þunga innfluttra kæliskápa fulla ábyrgð á söfnun og förgun 10% af þyngd allra kæliskápa sem skilað er inn á sorpsöfnunarstöðvar hvar sem er á landinu. Fyrirtæki geta fullnægt ábyrgð sinni með tvennu móti, þ.e.a.s. með því að gerast aðilar að sameiginlegu skilakerfi eins og RR-SKILum sem þá yfirtekur framleiðendaábyrgð félagsmanns og annast söfnun og förgun hlutfalls hans í rr-úrgangi á landsvísu. Félagsmenn greiða stofngjald auk endurvinnslugjalda sem eru mismunandi eftir tegundum tækja og hlutdeild hvers fyrirtækis í magni markaðssettra tækja á Íslandi. Hin leiðin er að fyrirtæki setji upp eigið skilakerfi, en það krefst jákvæðrar umsagnar sérstakrar stýrinefndar um rr-úrgang, starfsleyfis frá Umhverfisstofnun, bankaábyrgðar sem miðast við skuldbindingum skilakerfis í 15 ár sem nemur all að 400.000 SDR, söfnunarkerfis, flokkunarstöðvar, útflutningsleyfis fyrir úrgang, flutninga til útlanda og förgunar þar hjá viðurkenndum förgunaraðilum. Síðan fylgir þessu ýmis skýrslugerð til stýrinefndarinnar og opinverra aðila. Flest fyrirtæki velja fyrri kostinn enda er kjarnastarfsemi þeirra verslun og þjónusta en ekki förgunar- úrvinnsluiðnaður og menn vilja geta einbeitt sér að kjarna starfseminnar. Ef fleiri skilakerfi starfa í landinu þarf að skipta landinu upp á milli þeirra og gæta þess að jafnræði ríki með þeim. Það er hlutverk stýrinefndar að sjá til þess að þetta gangi eftir. Fyrirtæki sem lögin taka til áttu að hafa skráð sig í skilakerfi fyrir 1.október 2008 en annars a.m.k. 15 dögum áður en vara er markaðssett. Félagasmenn í RR-SKIL eru skráðir jafnóðum á vefsíðu félagsins www.rrskil.is . Þau fyrirtæki sem flytja inn raf- og raftækjabúnað og hafa ekki enn skráð sig í skilakerfi er ráðlagt að skoða þennan vef og hafa eftir atvikum samband við skrifstofu félagsins til að leita svara við spurningum sínum. |