Aðalsíða
Velkomin á heimasíðu RR-SKIL
Þinn RR- úrgangur er á þína ábyrgð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Ef þú ert framleiðandi eða innflytjandi raf- eða rafeindatækja barst þú frá 1.janúar 2009 fulla ábyrgð á réttri úrvinnslu raf- eða rafeindatækjaúrgangs  (rr-úrgangur).  Þetta leiðir af lögleiðingu sk. WEEE tilskipunar ESB á Íslandi, en Alþingi samþykkti breytingar á lögum 55/2003 á vorþingi 2008 sem flytja ábyrgð á rr-úrgangi frá sveitarfélögum til einstakra fyrirtækja sem markaðssetja raf- og rafeindatæki á Íslandi.  Skal ábyrgðaraðili vera aðili að skilakerfi 15 dögum áður en vara sem fellur undir lögin er markaðssett á Íslandi.

Til allrar hamingju er til lausn á þessum vanda.  Hún heitir RR-SKIL, sem er sameiginlegt félag fyrirtækja sem lögin ná til.   Sem aðili að RR-SKILum sleppur þú við vandræðin sem fylgja flutningum og förgun raftækjaúrgangs þar sem þú framselur ábyrgð þína á því til okkar.  RR-SKIL er ekki rekið með hagnað að markmiði heldur því að tekjur og gjöld hvers flokks standist sem mest á. 

 
Vistvænt fyrirtæki? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Fyrirtæki sem flyja inn raf- og rafeindatæki mynda RR-SKIL, - félag sem annast förgun raftækjaúrgangs fyrir þeirra hönd í samræmi við lög nr. 55/2003 og reglugerð Umhverfisráðuneytisins nr.1104/2009 .  RR-SKIL er fyrsta og stærsta skilakerfi fyrir þennan raftækjaúrgang á Íslandi (lesið um félagið sérstaklega og samþykktir þess annars staðar á þessum vef).   

 

Við leggjum til ílát og söfnum úrgangi á söfnunarstöðvum sveitarfélaga víða um landið, þar sem tekið er við honum án greiðslu frá þeim sem skila honum, flytjum hann til flokkunar og meðhöndlunar og önnumst förgun hans.   Reynt er að endurnýta sem mest af úrganginum í samstarfi við Fjölsmiðjuna, sem er vinnusetur fyrir ungt fólk sem stendur á krossgötum, en öðrum úrgangi er fargað á viðeigandi hátt af til þess bærum aðilum og greiða RR-SKIL fyrir þá förgun.

 

Á  þitt fyrirtæki að vera aðili að skilakerfi skv. ábendingu Umhverfisstofnunnar?  Hafðu samband við okkur og við leiðbeinum þér um aðild.   Hringið í okkur, sendið tölvupóst eða póst og við svörum strax.

 

 
Sækja um aðild Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stofngjald hjá RR-SKILum er 50.000,- (einskiptisgreiðsla).  Endurvinnslugjöld eru innheimt mánaðarlega og miðast þau við innflutt magn næstliðinn mánuð og eru mismunandi eftir tegund tækja (sjá Endurvinnslugjöld 2010 í kaflanum "Upplýsingar og útgefið efni"  hér til hliðar).

Vinsamlegast sækið strax um og fyllið út excel skjalið sem er hér að neðan og komið því á skrifstofu okkar undirrituðu í pósti eða á fax 5629018. 

 

  • Umsókn um aðild að RR-SKILUM   
  •  Application for membership in RR-SKIL - English 
  •  
     

    Skoðanakönnun

    Telur þú að innflutningur á raftækjum eigi eftir að dragast meira saman á árinu?
     

    Gestir

    Það eru 3 gestir á síðunni núna